Líf mittMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Í þessari færslu ætla ég að rifja upp mín fyrstu 10 ár:1986 = Ég fæddist 14 október
1987 = Ég varð eins árs 14 október
1988 = Ég fór í fyrsta sinn í ferðalag og fór með Norrænu til danmerkur og Noregs (held ég)
1989 = Ég var í leikskólanum sem heitir eitthvað sem ég man ekki, en man núna. Gæsló í vestmannaeyjum. Stefán frændi kom í heimsókn um sumarið. Ég datt á snjóþotu og fékk gat á hausinn.
1990 = Hálskirtlarnir voru teknir úr mér og Margrét systir mín fæddist 4 ágúst.
1991 = Þetta ár er alveg óljóst í huga mér, held ég hafi verið á leikskólanum Sóla í Vestmannaeyjum.
1992 = Ég byrjaði í Barnaskóla Vestmannaeyja og kennarinn minn hét Brynja. Mig minnir að ég hafi kynnst æskuvini mínum þetta ár, honum Einari Páli.
1993 = Ég byrjaði í öðrum bekk og kennarinn minn hét Eygló Björnsdóttir.
1994 = Þriðji bekkur og ég kynntist Aroni og Gísla sem voru góðir vinir mínir í æsku. Það birtist mynd af mér í blaði í eyjum þar sem ég var að veiða í höfninni.
1995 = Þetta ár fluttum við til Moi í Noregi og ég byrjaði í 3 bekk þar. Sem var jafnframt eins og 4 bekkur á Íslandi, en bekkjarkerfið var eitthvað einkennilegt. Við bjuggum til að byrja með á Lyngveien og fluttum síðan á Övre Stranda. Ég lék í leikriti í skólanum sem hét Prinsesse vil ikke. Það fjallaði um prinsessu sem gat ekki sagt annað en "ég vil ekki". Ég lék pabba prinsessunnar, s.s. konunginn. Ég náði að læra utanaf allar línurnar mínar í leikritinu, en ég skildi samt ekki helminginn af því sem ég sagði.
1996 = Þetta árið byrjaði ég í fjórða bekk og var farinn að plumma mig vel í Norge. Ég var í skóla sem hét Nygård Barneskole.
FRAMHALD Á MORGUN
Eitthvađ baraMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Góðan dag.ég kem hérna með sömu rulluna aftur, blablalba ég hef ekki bloggað geeeðveikt lengi.......
Héðan af mun ég skrifa bara eitthvað. Ekkert dagbókarrugl,
sjáum hvernig gengur....
Sömþing interesting tú ríd.
Hópfúllí.
!Magnús Jóhann Vilhjálmsson
KUGELSCHREIBERLondonMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Hæ gott fólk.Ætla að setja inn pínulitla bloggfærslu þar sem að við vorum að koma frá london. Fórum s.s. út 16 ágúst og komum heim í gær (22 ágúst).
Við vorum á búddistanámskeiði í Taplow Court rétt fyrir utan London 17 til 19 ág.
Virkilega gaman og eitthvað sem gaf mér alveg helling!
Síðan vorum við á hóteli rétt hjá Earls Court 19 til 22 ág. Við túristuðumst helling, fórum á science museum sem var geðveikt gaman, og í london eye o.sv.frv. fórum líka á Les Miserables. Mjög skemmtilegt að upplifa alvöru söngleik.
Þegar við komum aftur til Íslands vorum við svo heppnir að hitta á Óla Helga og Ernu Lóu á flugvellinum. Þau voru á leiðinni út til Milano í tískunám. Eins gott að þau verði ógisslega töff þegar þau koma tilbaka.
Anyway
ég set inn myndir hérna til hliðar í albúmið frá ferðinni okkar til london
kíkið á það
bleble
faddirúllMagnús Jóhann Vilhjálmsson
hæ þarna fólkég hef s.s. ekki bloggað í áratug og ætla að reyna að segja eitthvað af viti.
hmmm. hvað hefur gerst síðan í desember.....
Ég er byrjaður að' vinna í Byko, nánar tiltekið í árstíðadeild í Byko breidd.
Byrjaði þar í janúar og ætla að vera þar fram að næsta vori. Ég er btw ekki hættur í skólanum, ætla bara að klára stúdentinn í gegnum fjarnám. Nenni ekki að vera fátækur námsmaður lengur.
Enn, ég vinn með frábæru fólki og er að fíla vinnustaðinn. Eftir að ég byrjaði hjá byko hefur frekar lítið gengið á í mínu lífi vegna vinnu. Ég komst s.s. að því að það sé ekkert skárra að vinna fullann vinnudag miðað við að vera í dagskóla.
Allavega þá erum við fluttir, já það var í rauninni það eina merkilega sem gerst hefur. Við búum í geðveikri íbúð í garðabæ sem er miklu stærri enn hitt draslið sem við vorum í. Og það er búið að halda heljarinnar innflutningspartí sem ég skemmti mér bara mjög vel í og eflaust margir fleirri. Þið getið skoðað myndir úr íbúðinni á blogginu hans Skjaldar http://skjoldur.bloggar.is
Ég sit núna í tölvunni hjá tengdaforeldrunum því við erum í tíu daga sumarfríi að koma upp sumarbústaðinum okkar!! Erum búnir að mála og vesenast núna í þrjá daga og síðan komum við honum fyrir á réttum stað í gærkvöldi, var að setja inn myndir frá því í myndaalbúmið hérna til vinstri.
Ég hef lítið annað að segja og ætla að leyfa ykkur að halda göngu ykkar áfram um netsins vegi.
Þó svo að ég hafi bloggað núna er ekki þar með sagt að það gerist í nánustu framtíð, gangið því hægt um gleðinnar dyr!!
bleble =)
BloggMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Það er hérmeð staðfest, ég er versti bloggari sem uppi hefur verið. Geri aðrir betur!Er það annars einhver sem les bloggið mitt?
comment..... ;)
TeiknimyndatúttaMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Var að breyta teiknimynd af kisu yfir í kisuna mína. Hana Túttu =)
Alvöru
Teiknimynda
PrófMagnús Jóhann Vilhjálmsson

Hellú
Nú er ég er búinn að vera í prófageðveiki síðan á fimmtudag. Var í 3 prófum á fimmtudaginn. 4 á laugardaginn og 2 á sunnudaginn.
Það er allt búið og er ég mjög ánægður með niðurstöðurnar! Þetta voru s.s. skólaprófin, þau veita mér leyfi til að taka lokaprófin hjá flugmálastjórn þann 13 og 15 desember. Maður þarf að ná 7,5 í einkunn á prófunum til að ná þeim. Minns var með 9 í meðaleinkunn! :D geðveikt stoltur af mér!
Flugskólaprófin komu s.s. svona út hjá mér:
Almenn þekking: 9,5
Afkastageta og áætlanagerð: 8,5
Starfsvenjur: 8,5
Flugeðlisfræði: 10
Heilbrigðisfræði: 9
Fjarskipti: 8,5
Lög og reglur: 7,5
Veðurfræði: 9
Flugleiðsaga: 9
Nú er bara að massa bækurnar enn meira fyrir prófin hjá flugmálastjórn =)
Desperate housewivesMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Shitttt. Skjöldur og ég erum búnir að stúta fyrstu seríunni af desperate housewives þessa vikuna. (já, veit. erum soldið eftir á) En þetta er rugl. Erum orðnir hooked á þessu helvíti.Vorum að klára síðasta þáttinn í kvöld og getum ekki beðið að fá seríu nr 2 lánaða :P
Verð bara að segja hvað mér finnst hún Lynnette Scavo í D-H óhugnanlega lík henni mömmu minni! Soldið scary. Þær gætu verið systur. Þreyttu húsmæðurnar sem eru alltaf á fullu með að gera allt sem þarf að gera og vesenast með þvottinn, elda, versla, skamma börnin, tala í símann vesenast vesenast =)
Læt hérna inn myndir af þeim.
Commentið ef þið eruð sammála eða ósammála. ;)

Mamma

Lynnette

Mamma

Lynnette
JólaundirbúningurMagnús Jóhann Vilhjálmsson
Ætla að setja hér inn lista sem ég fann á síðu. (http://atli.askja.org/jol/)Þetta eru s.s. fyrirtæki sem hafa byrjað að auglýsa/skreyta fyrir jólin LÖNGU áður en rétt er. Þetta er ekkert nema græðgi hjá fyrirtækjunum.Þetta skemmir jólastemminguna fyrir mér og örugglega fleirum.
Jólin eru núna farin að byrja um miðjan október og enda um miðjan janúar. Semsagt einn fjórði hluti ársins!! Er ekki að fíla þetta.

SVARTI LISTINN:
Rúmfatalagerinn - jólaauglýsingar byrjaðar fyrir miðjan októberIkea - byrjað að selja jólavörur 12. október
Jólamarkaðurinn Fellsmúla - af augljósum ástæðum
Birta - hvetur til jólaundirbúnings frá og með 27. október
Hagkaup - komnar upp jólaskreytingar 27. október (eða fyrr)
Blómaval - opnar Jólaland 28. október
Garðheimar - Jólaland opnað 4. nóvember
Byko - Byrjar í byrjun nóvember
Húsasmiðjan - Byrjar í byrjun nóvember
Kringlan - Orðin jólaskreytt í lok október
Shopusa.is - Byrjar a.m.k. í október
Kókómjólk - Jólaumbúðir og jólaleikur í lok október
Egils - Það eru komnar jólamyndir á appelsín og svo jólaöl
Glerártorg á Akureyri - búin að skreyta innanhúss og ætlar að kveikja á skreytingum utanhúss 18. nóv.
Europris - Jólavörur komnar í byrjun nóvember
10-11 - Byrjuð 3. október